Festu bílhölduna við mælaborðið
Áður en hafist er handa skal ganga úr skugga um að mælaborðið og yfirborð
festingarplötunnar séu þurr og hrein.
1 Flettu varnarfilmunni af límhlutanum á undirhlið festingarplötunnar. Settu
festingarplötuna á sinn stað á mælaborðinu. Gættu þess að ýta plötunni jafnt og
þétt niður til að hún límist vel.
2 Gakktu úr skugga um að festingarlæsingin sé laus og komdu bílhöldunni þannig
fyrir á festingarplötunni að festingarstauturinn snúi upp og í áttina að þér.
3 Ýttu á festingarlæsinguna þannig að hún lokist.
Taktu hölduna af festingarplötunni
Losaðu festingarlæsinguna og lyftu höldunni af flipanum við jaðar sogskálarinnar.